
Öryggismyndavélar/SEEKFREE
Við hjá Vöruvernd höfum hafið sölu á öryggismyndavélakerfum. Kerfi sem henta vel fyrir verslanir, fyrirtæki stór og smá, heimili og sumarhús. Við bjóðum upp á kerfi jafnt innan sem utandyra, öryggismyndavélar sem tryggja myndræna vörn og hágæðamyndefni úr upptökum hefðbundinna öryggismyndavélakerfa. Fyrir þá sem vilja þróaðri lausnir bjóðum við gervigreindarlausnina SEEKFREE frá Unvivew. Með SEEKFREE leitar þú líkt og í leitarvél eða ChatGPT, t.d. maður í bláum jakka, barn á gangi, manneskja stingur hlut í vasann, einnig má leita eftir farartækjum, jafnvel tegundum eins og Tesla, Toyota o.s.frv. SEEKFREE er bylting í öryggismyndavélakerfum og við erum afar stolt af því að vera fyrst til að bjóða slíka lausn á almennan markað. Bílnúmeravélar virka einnig með þessu kerfi, þá einfaldlega slærðu inn skráningarnúmerið t.d. AA-BB1 og þá birtast niðurstöður ef þær eru til. Kerfið greinir myndefnið eftir á en safnar ekki persónugreinanlegum upplýsingum jafnóðum og snertir því ekki á GDPR umfram hefðbundinn kerfi. Við bjóðum upp á alls konar samsetningar á kerfum eftir aðstæðum hverju sinni.
Sjá nánar